Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   þri 24. mars 2026 09:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ragnar Bragi flytur til Danmerkur - Framhaldið í boltanum óljóst
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Bragi Sveinsson og hans fjölskylda eru að flytja til Danmerkur í sumar. Fjölskyldan flytur til Árósa þar sem eiginkona hans, Gréta Rut Bjarnadóttir, er á leið í sérnám í tannréttingum.

Ragnar Bragi hefur verið fyrirliði Fylkis undanfarin ár en verður ekkert með liðinu í sumar þar sem hann gekkst undir aðgerð á hné eftir krossbandsslit á síðasta ári.

Hann segir í stuttu samtali við Fótbolta.net að framtíð hans í fótboltanum sé óljóst.

Ragnar Bragi er 31 árs og hefur spilað með Fylki, Víkingi og unglingaliði Kaiserslautern á sínum ferli.
Slapp
banner