Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 23. mars 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þjálfari Ísaks látinn taka pokann sinn
Mynd: Köln
Lukas Kwasniok hefur verið rekinn sem stjóri Köln eftir 3-3 jafntefli liðsins gegn Borussia Monchengaldbach á laugardaginn.

Köln er 15. sæti með 26 stig, tveimur stigum á undan St. Pauli sem er í fallumspilssæti.

Köln er án sigurs í síðustu sjö leikjum og það kom fram í tilkynningu félagsins að jafnteflið um helgina hafi verið síðasti naglinn í kistu Kwasniok.

„Við höfum einfaldlega ekki nælt í nógu mörg stig. Eftir ítarlega greiningu höfum við ákveðið að láta Lukas fara," sagði Thomas Kessler, framkvæmdastjóri félagsins.

Kwasniok var ráðinn síðasta sumar og skrifaði undir samning til ársins 2028. René Wagner, fyrrum aðstoðarþjálfari félagsins, tekur við liðinu tímabundið.
Slapp
banner