Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 21:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frábær endurkomusigur hjá Lille - Annað tap hjá Brann
Hákon Arnar
Hákon Arnar
Mynd: EPA
Sverrir Ingi varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark
Sverrir Ingi varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark
Mynd: EPA
Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille sem vann dýrmætan endurkomusigri gegn Marseille í frönsku deildinni.

Ethan Nwaneri, lánsmaður frá Arsenal, kom inn á fyrir Mason Greenwood snemma í fyrri hálfleik og hann sá til þess að Marseille var með eins marks forystu í hálfleik.

Thomas Meunier jafnaði metin snemma í seinni hálfleik og Olivier Giroud tryggði Lille sigurinn með marki undir lokin. Lille er í 5. sæti með 47 stig, jafn mörg stig og Lyon og tveimur stigum á eftir Marseille sem er í 3. sæti.

Róbert Frosti Þorkelsson spiilaði seinni hálfleikinn þegar GAIS féll úr leik í undanúrslitum sænska bikarsins eftir 3-0 tap gegn Mjallby.

Brann er án stiga eftir tvær umferðir í norsku deildinni eftiir 2-1 tap gegn Tromsö. Freyr Alexandersson var með Jón Dag Þorsteinsson íi byrjunarliðinu og Kristall Máni Ingason kom inn á sem varamaður. Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon eru á meiðslalistanum.

Sverrir Ingi Ingason varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar Panathinaikos vann Asteras Tripolis 2-1 í grísku deildinni. Hörður Björgvin Magnússon var í byrjunarliði Levadiakos þegar liðið vann Atromitos 1-0. Hjörtur Hermannsson var í byrjunarliði Volos þegar liðið vann dramatískan 2-1 sigur á PAOK en sigurmarkið kom á fimmtu mínútu í uppbótatíma.

Þá tók Davíð Kristján Ólafsson út leikbann þegar Larissa gerði markalaust jafntefli gegn Olympiakos. Panathinaikos er í 4. sæti með 49 stig, Levadiakos er í 5. sæti með 42 stig, Volos er í 7. sæti með 31 stig. Larissa er í 12. sæti með 23 stig.

Brynjólfur Willumsson kom inn á eftir tæplega klukkutíma leik þegar Groningen vann AZ Alkmaar 3-0 í hollensku deildinni. Groningen er í 10. sæti með 38 stig. Nökkvi Þeyr Þórisson var ekki með Telstar vegna meiðsla þegar liðið vann frábæran 3-1 sigur á toppliði PSV. Telstar er í 14. sæti með 27 stig.

Dagur Dan Þórhallsson kom inn á eftir tæplega klukkutíma leik þegar CF Montreal tapaði 4-3 gegn FC Cincinnati í MLS deildinni í Bandaríkjunum. Montreal er í 12. sæti Austurdeildarinnar með þrjú stig eftir fimm umferðir.
Athugasemdir
banner