Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
banner
   mán 23. mars 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Depay var í símanum á bekknum - Í samskiptum við læknateymi landsliðsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjálfarateymi Corinthians í brasilísku deildinni var mjög ósátt við Memphis Depay, stjörnu liðsins, þegar leikmaðurinn var í símanum þegar hann sat á bekknum í 1-1 jafntefli liðsins gegn Flamengo í brasilísku deildinni í nótt.

Depay var í byrjunarliðinu en þurfti að fara af velli vegna meiðsla eftir rúmlega tuttugu mínútna leik.

Hann útskýrði málið á samfélagsmiðlum en hann sagðist vera í samskiptum við læknateymi hollenska landsliðsins.

„Ég kom út til að styðja liðið. Ég hefði getað verið inni út af meiðslunum. Ég er líka ósáttur með úrslit leiksins," skrifaði Depay.

Hann var valinn í landsliðshópinn fyrir æfingaleiki gegn Noregi og Ekvador síðar í mánuðinum.


The Corinthians coaching staff told Memphis Depay to stop using his phone on the bench while the match was still going on.
by
u/Prestigious-Back-981 in
soccer

Athugasemdir
banner
banner