Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 23. mars 2026 11:39
Kári Snorrason
Chiesa dregur sig úr landsliðshópnum
Mynd: EPA
Federico Chiesa hefur dregið sig úr ítalska landsliðshópnum fyrir komandi verkefni sökum meiðsla.

Gennaro Gattuso, þjálfari Ítala, hefur kallað inn kantmanninn Nicolo Cambiaghi, leikmann Bologna, í stað Chiesa.

Ítalía mætir Norður Írlandi í undanúrslitum umspils upp á að komast á HM á fimmtudaginn. Ef Ítalía vinnur Norður Írland mætir liðið sigurvegara úr viðureign Wales og Bosníu og Hersegóvínu 31. mars á útivelli.

Tapi liðið verður hins vegar leikin vináttuleikur. Ítalir hafa misst af síðustu tveimur heimsmeistaramótum eftir að hafa fallið úr leik í umspili.
Slapp
banner