Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
banner
   þri 24. mars 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Öllum boðið í 100 ára afmæli Melavallar
Mynd: Henson
Haldið verður upp á aldarafmæli Melavallar í Valsheimilinu miðvikudaginn 8. apríl klukkan 17:00.

Þorgeir Guðmundsson verður veislustjóri og munu góðir gestir stíga á svið.

Einar Kárason, Sigmundur Steinarsson og Viðar Halldórsson munu flytja ávörp og koma ýmsir tónlistarmenn fram.

Þórarinn Ólafsson, Dagbjartur Willardsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir og Ragnar Már Magnússon munu öll spreyta sig við söng áður en hljómsveitin Bítilbræður mætir til leiks ásamt Hans Jenssyni saxófónleikara.

Allir eru velkomnir í Valsheimilið 8. apríl og verður frítt inn.
Slapp
banner