Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
banner
   mán 23. mars 2026 14:24
Kári Snorrason
Dimitri Payet leggur skóna á hilluna
Í leik gegn Íslandi á EM 2016.
Í leik gegn Íslandi á EM 2016.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Franski miðjumaðurinn Dimitri Payet hefur lagt skóna á hilluna, 38 ára að aldri. Hann var síðast á mála hjá brasilíska félaginu Vasco da Gama en hann yfirgaf félagið síðasta sumar.

Payet greindi frá ákvörðun sinni í hálfleiksviðtali í leik Marseille og Lille í frönsku úrvalsdeildinni í gær.

Hann er eflaust þekktastur fyrir tíma sinn hjá West Ham þar sem hann heillaði stuðningsmenn upp úr skónum tímabilið 2015/16 og skoraði nokkur af eftirminnilegustu mörkum í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Hann lék alls 60 leiki fyrir félagið og skoraði 15 mörk áður en hann sneri aftur til Marseille árið 2017.

Á ferlinum lék Payet einnig fyrir Nantes, Saint Etienne og Lille. Þá spilaði hann 38 landsleiki fyrir Frakkland og var í lykilhlutverki þegar liðið fór alla leið í úrslitaleik EM árið 2016.


Athugasemdir
banner