Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   mán 23. mars 2026 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Griezmann skrifar undir tveggja ára samning við Orlando
Mynd: EPA
Antoine Griezmann er á leið til Orlando City í Bandaríkjunum næsta sumar en hann gengur til liðs við félagið á frjálsri sölu frá Atletico Madrid.

Fabrizio Romano greinir frá því að hann muni skrifa undir tveggja ára samning en hann mun ganga formlega til liðs við félagið í júlí.

Hann ferðast til Bandaríkjanna í vikunni til að ganga frá samningsmálum.

Dagur Dan Þórhallsson lék með Orlando City frá 2023 en hann samdi við CF Montreal fyrir áramót. Orlando er með þrjú stig eftir fimm umferðir í MLS deildinni.
Athugasemdir
banner
banner