Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
banner
   þri 24. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeild kvenna í dag - Lundúnaslagur í 8-liða úrslitum
Arsenal varð óvænt Evrópumeistari eftir sigur gegn ótrúlega öflugu liði Barcelona í fyrra.
Arsenal varð óvænt Evrópumeistari eftir sigur gegn ótrúlega öflugu liði Barcelona í fyrra.
Mynd: EPA
Nú þegar karlarnir eru uppteknir í landsleikjaglugga er mikið fjör í útsláttarkeppni Meistaradeildar kvenna.

Það eru gríðarlega spennandi leikir á dagskrá í dag og í kvöld þegar Wolfsburg og Arsenal eiga heimaleiki í 8-liða úrslitum.

Tvö af allra bestu liðum Evrópu fyrir nokkrum árum síðan eigast við þegar Wolfsburg fær Lyon í heimsókn, áður en ríkjandi Evrópumeistarar Arsenal taka á móti Chelsea í Lundúnaslag.

Liðin eigast við í fyrri leikjunum í dag og fara seinni leikirnir fram í næstu viku.

Leikir dagsins
17:45 Wolfsburg W - Lyon W
20:00 Arsenal W - Chelsea W
Athugasemdir
banner
banner