Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
banner
   mán 23. mars 2026 09:40
Elvar Geir Magnússon
Man Utd vill leikmann Arsenal - Bruno á toppi óskalistans
Powerade
Myles Lewis-Skelly.
Myles Lewis-Skelly.
Mynd: EPA
Bruno Guimaraes.
Bruno Guimaraes.
Mynd: EPA
Manchester United er með bakvörð frá Arsenal og miðjumann frá Newcastle á óskalista sínum. Þetta og fleira í Powerade slúðurpakka dagsins.

Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly (19) frá Arsenal. (TeamTalk)

Bernardo Silva (31), miðjumaður Manchester City, vill helst fara til Barcelona þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið. Portúgalinn óttast að það sé hinsvegar ekki pláss fyrir sig í liðinu þar sem nóg sé af leikmönnum sem spila hans hlutverk. (Sport)

Bruno Guimaraes (28), miðjumaður Newcastle United, er á toppi lista Manchester United yfir leikmenn sem gætu fyllt skarð landa síns Casemiro (34). United hefur þegar rætt við umboðsmenn leikmannsins. (UOL)

Manchester United mun fá samkeppni um brasilíska miðjumanninn Andrey Santos (21) en West Ham og Juventus hafa bæði áhuga á þessum leikmanni Chelsea. (CaughtOffside)

Inter fylgist einnig með stöðu Santos á Stamford Bridge og gæti reynt að fá hann í sumar. (Calciomercato)

Sóknarmaðurinn reynslumikli Robert Lewandowski (37) veltir því fyrir sér hvort hann eigi að skrifa undir nýjan eins árs samning við Barcelona eða fara annað, mögulega til félags í bandarísku MLS-deildinni. (Fabrizio Romano)

Tottenham þarf að taka stóra ákvörðun um hvort félagið ætli að halda bráðabirgðastjóranum Igor Tudor. (Telegraph)

Valdamiklir menn innan Tottenham telja að landsleikjaglugginn sé fullkominn tímapunktur til að segja skilið við Tudor. (Football Insider)

AC Milan hefur áhuga á Leon Goretzka (31) hjá Bayern München en þýski miðjumaðurinn verður samningslaus í sumar. (Christian Falk)
Athugasemdir
banner
banner