Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   þri 24. mars 2026 09:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stígur Diljan fékk heyrnartólin
Með heyrnartólin.
Með heyrnartólin.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Bose-bikarnum lauk um helgina þegar Víkingur vann Stjörnuna í úrslitaleik keppninnar.

Þeir Óskar Borgþórsson, Valdimar Þór Ingimundarson og Gylfi Þór Sigurðsson skoruðu mörk Víkings í leiknum. Örvar Eggertsson skoraði mark Stjörnunnar.

Stígur Diljan Þórðarson (2006), vængmaður Víkings, átti góðan leik í Miðgarði á laugardag og var valinn maður leiksins af mótshöldurum.


Í verðlaun fékk hann Bose QC ultra heyrnartól. Þau eru endurhönnuð frá grunni með nýrri tegund noise cancellation tækni sem virkar líka á hljóðneman sem gerir þau frábær á opnum vinnustöðum.
Slapp
banner
banner