Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
   fös 04. október 2013 15:15
Magnús Már Einarsson
Lars Lagerback: Guðlaugur Victor getur orðið mjög góður
Lars Lagerback.
Lars Lagerback.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Lars Lagerback, landsliðsþjálfari Íslands, segist hafa fylgst með Guðlaugi Victori Pálssyni að undanförnu en hann er nýliði í landsliðshópnum fyrir komandi leiki gegn Kýpur og Noregi.

,,Ég hef séð nokkra leiki í sjónvarpinu en ég hef ekki heimsótt hann. Hann er að standa sig vel. Það er alltaf erfitt þegar að lið eru í vandræðum eins og þeir eru. Ég kunni vel við hann þegar hann kom inn í hópinn í vináttuleik á sínum tíma," sagði Lars.

,,Hann hefur hæfileika og getur orðið mjög góður. Ég held að hann sé fæddur árið 90 og ég vona að hann eigi bjarta framtíð fyrir höndum. Það er samt ekki ástæðan fyrir því að hann er í hópnum, það er af því að hann er búinn að standa sig vel í Hollandi."

Níu leikmenn íslenska liðsins eru einungis einu gulu spjaldi frá því að fara í leikbann en Lars vill að leikmenn fari af fullum þunga í leikinn gegn Kýpur.

,,Ég held að þú getir ekki sagt leikmönnum að passa sig eða hugsa um næsta leik. Þeir þurfa að fara af 100% krafti en þetta er spurning um að fá ekki á sig heimskulegar aukaspyrnur og gul spjöld. Við tölum alltaf um það þegar við ræðum varnarleikinn. Ef þú þarft að renna þér í tæklingu þá ertu líklega ekki búinn að verjast eins vel og þú hefðir getað gert."

Ísland mætir Kýpur á Laugardalsvelli á föstudag en langt er síðan uppselt varð á þann leik. Lagerback vonast eftir góðum stuðningi þar.

,,Það er yndislegt að það er uppselt. Stuðningurinn var frábær gegn Albaníu og hann gerir mikið fyrir bæði okkur á bekknum sem og leikmennina að fá jákvæðan stuðning. Ég vona að við fáum sama stuðning gegn Kýpur og gegn Albaníu."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner