Mario Balotelli komst í sögubækurnar þegar hann skoraði fyrsta mark leiksins í 1-2 tapi Brescia gegn Lazio fyrr í dag. Hann skoraði þannig fyrsta mark Serie A á nýjum áratugi, sem hann gerði einnig á upphafi síðasta áratugar í 1-0 sigri Inter gegn Chievo.
Balotelli var ekki sáttur með hegðun stuðningsmanna Lazio á meðan á leiknum stóð. Balotelli hefur orðið fyrir kynþáttafordómum á tímabilinu og eru ultras stuðningsmenn Lazio þekktir fyrir að sýna rasisma enda með sterk tengsl við fasismahreyfinguna á Ítalíu.
„Þetta var sárt tap en við munum bæta upp fyrir það. Við erum á réttri leið," skrifaði Balotelli á Instagram.
„Stuðningsmenn Lazio sem voruð á leikvanginum: SKAMMIST YKKAR! #saynotoracism."
Athugasemdir