Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tveir stjórar orðaðir við Chelsea - Simons til Man Utd?
Powerade
Snýr Conte aftur á Stamford Bridge?
Snýr Conte aftur á Stamford Bridge?
Mynd: EPA
Xavi Simons.
Xavi Simons.
Mynd: EPA
Er Alisson á förum frá Liverpool?
Er Alisson á förum frá Liverpool?
Mynd: EPA
Þá er ný vinnuvika farin að rúlla. Það er ekki hægt að byrja hana betur en með slúðrinu sem er heldur betur áhugavert í dag.

Newcastle United er sagt hafa áhuga á senegalska framherjanum Nicolas Jackson (24), sem snýr aftur til Chelsea í sumar eftir að Bayern Munich ákvað að nýta ekki kaupréttar­ákvæði í lánssamningi hans (Talksport)

Nottingham Forest gæti lagt fram tilboð í miðjumanninn Hayden Hackney (23) frá Middlesbrough ef Elliot Anderson (23) yfirgefur félagið í sumar. (Sun)

Atletico Madrid ætlar að blanda sér í baráttuna við Tottenham um vinstri bakvörðinn Andy Robertson (32), sem hefur staðfest að hann fari frá Liverpool þegar samningur hans rennur út í júní. (Daily Record)

Þjálfari Napoli, Antonio Conte, er á lista Chelsea yfir mögulega arftaka Liam Rosenior. (Express)

Þá er Francesco Farioli, þjálfari Porto, einnig til skoðunar hjá Chelsea, en samningur hans gildir til ársins 2028 og inniheldur 20 milljóna evra klásúlu. (Nicolo Schira)

Arsenal og Chelsea voru meðal félaga sem fylgdust með Mika Godts (20) skora fyrir Ajax um helgina. (Teamtalk)

Manchester United hefur áhuga á Xavi Simons (23) og fylgist með stöðu hans hjá Tottenham fyrir sumarið. (Fichajes)

Everton hefur augastað á miðjumanninum John McGinn (31) hjá Aston Villa. (Football Insider)

Liverpool óttast að missa markvörðinn Alisson Becker (33), sem er sagður opinn fyrir félagaskiptum til Juventus. (Teamtalk)

Bernardo Silva (31), leikmaður Manchester City, er eftirsóttur hjá Juventus, Barcelona, Paris Saint-Germain og Al-Hilal. (Caught Offside)

John Stones (31) hefur boðið Barcelona þjónustu sína þar sem hann er á útleið frá Manchester City í sumar. (Fichajes)

Liverpool hefur haft samband við RB Leipzig varðandi kantmanninn Yan Diomande (19). (Football Insider)

Arsenal fylgist með stöðu Endrick (19), sem er á láni hjá Lyon frá Real Madrid. (Mundo Deportivo)
Slapp
banner
banner