Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 16:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Fram og ÍBV: Byrjar sinn fyrsta leik í Bestu
Fred kemur inn hjá Fram og þrjár breytingar hjá ÍBV
Sóknarmaðurinn Sesar Örn kemur inn í lið ÍBV.
Sóknarmaðurinn Sesar Örn kemur inn í lið ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fred byrjar sinn fyrsta leik á þessu tímabili.
Fred byrjar sinn fyrsta leik á þessu tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Róbert Elís er mættur aftur í lið ÍBV.
Róbert Elís er mættur aftur í lið ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 17:30 hefst fyrsti leikur dagsins í Bestu deildinni þegar Fram tekur á móti ÍBV á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal. Leikurinn er liður í 4. umferð deildarinnar sem hófst í gær.

Fram er með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leiki sína en ÍBV er einungis með eitt stig.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  0 ÍBV

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn Þór á Akureyri. Fred Saraiva kemur inn á miðsvæðið fyrir Frey Sigurðsson sem sest á bekkinn. Fred kom inn á í hálfleik gegn Þór og olli talsverðum usla.

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, snýr til baka úr leikbanni og hann gerir þrjár breytingar frá tapinu stóra gegn KR. Sesar Örn Harðarson (2006) kemur inn ásamt þeim Milan Jezdemirovic og Róberti Elís Hlynssyni. Sesar kom inn á gegn KR og skoraði seinna mark ÍBV í leiknum. Sesar byrjar í dag sinn fyrsta leik í Bestu deildinni en hann kom frá Selfossi í vetur. Róbert er lánsmaður frá KR og var því ekki með í síðasta leik. Þeir Arnar Breki Gunnarsson, Vicente Valor og Pisco taka sér sæti á bekknum. Það vekur athygli að serbneski framherjinn Filip Stuparevic er ekki í hóp og Emil Gautason (2010) kemur inn á bekkinn.

Byrjunarlið Fram:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
10. Fred Saraiva
12. Simon Tibbling
17. Atli Þór Jónasson
18. Ægir Jarl Jónasson
19. Kennie Chopart (f)
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic

Byrjunarlið ÍBV:
1. Marcel Zapytowski (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon (f)
4. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
7. Sesar Örn Harðarson
8. Bjarki Björn Gunnarsson
10. Viggó Valgeirsson
16. Milan Jezdemirovic
23. Arnór Ingi Kristinsson
26. Felix Örn Friðriksson
27. Róbert Elís Hlynsson
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 3 3 0 0 14 - 6 +8 9
2.    Víkingur R. 3 2 1 0 6 - 3 +3 7
3.    Valur 3 2 0 1 6 - 3 +3 6
4.    Stjarnan 3 2 0 1 8 - 7 +1 6
5.    Þór 3 2 0 1 5 - 6 -1 6
6.    Breiðablik 3 1 2 0 2 - 1 +1 5
7.    Fram 3 1 1 1 6 - 5 +1 4
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    ÍA 3 0 2 1 4 - 5 -1 2
10.    KA 4 0 1 3 4 - 8 -4 1
11.    FH 3 0 1 2 3 - 7 -4 1
12.    ÍBV 3 0 1 2 4 - 9 -5 1
Slapp
banner
banner