FH-ingar mættu til leiks í óhefðbundnum treyjum fyrir leikinn gegn KR í 4. umferð Bestu deildarinnar í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 4 - 2 FH
FH gleymdi að panta varabúninga frá Nike og þurfti að fá Henson til að sauma búninga fyrir kvöldið.
Þeir voru í hvítum Nike-stuttbuxum og í blárri Henson-treyju, með hvítum og svörtum línum.
Félagið þurfti að fá samþykki frá Nike til að spila í treyjunum sem fékkst eins og sjá má á myndunum sem Hafliði Breiðfjörð tók á Meistaravöllum í kvöld.
Staðan er 4-2 fyrir KR þegar búið er að flauta til loka fyrri hálfleiks, en allt stefnir í fjórða sigur KR af fjórum mögulegum.




