Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 23:18
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Markalaust í Mílanó - Mark dæmt af og David brjálaður að fá ekki víti
Mynd: EPA
Milan 0 - 0 Juventus

AC Milan og Juventus gerðu markalaust jafntefli í 34. umferð Seríu A í Mílanó á Ítalíu í kvöld.

Mílanó-menn sköpuðu sér betri færi í byrjun leiksins. Youssouf Fofana átti skot sem hafnaði í hliðarnetinu og þá varði Michele Di Gregorio frábærlega frá Adrien Rabiot áður en Rafael Leao þrumaði boltanum yfir.

Juventus svaraði og var Francisco Conceicao þeirra hættulegasti maður, en hann átti frábæran sprett inn í teiginn á 35. mínútu áður en hann sendi boltann fyrir markið og á Khephren Thuram sem skoraði, en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu.

Conceicao hélt áfram að ógna á hægri vængnum, en aðeins nokkrum mínútum síðar keyrði hann framhjá varnarmanni og hamraði boltanum á markið, en Mike Maignan varði vel.

Milan byrjaði seinni hálfleikinn eins og þann fyrri, með góðu tækifæri er Alexis Saelemakers fékk boltann í teignum en setti hann í þverslá. Algert dauðafæri.

Umdeilt atvik kom upp eftir rúmar fimmtíu mínútur er kanadíski sóknarmaðurinn Jonathan David geystist fram völlinn og fór fram hjá hverjum varnarmanninum á fætur öðrum áður en hann féll í teignum. Mattia Gabbia virtist ýta við honum þannig David missti jafnvægi, en ekkert var dæmt.

Liðunum var fyrirmunað að skora í þessum leik og enduðu leikar 0-0. Milan, sem var lengi vel í titilbaráttu, er í 3. sæti með 67 stig á meðan Juventus er í 4. sæti með 64 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 34 25 4 5 80 31 +49 79
2 Napoli 34 21 6 7 52 33 +19 69
3 Milan 34 19 10 5 48 27 +21 67
4 Juventus 34 18 10 6 57 29 +28 64
5 Como 34 17 10 7 59 28 +31 61
6 Roma 34 19 4 11 48 29 +19 61
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 34 14 6 14 42 41 +1 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 34 13 7 14 41 44 -3 46
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Parma 34 10 12 12 25 40 -15 42
13 Torino 34 11 8 15 39 56 -17 41
14 Genoa 34 10 9 15 40 48 -8 39
15 Fiorentina 34 8 13 13 38 45 -7 37
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Lecce 34 7 8 19 22 46 -24 29
18 Cremonese 34 6 10 18 26 51 -25 28
19 Verona 34 3 10 21 23 56 -33 19
20 Pisa 34 2 12 20 24 61 -37 18
Slapp
banner
banner
banner