Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Hljóti að fá að fara á láni í FH eða eitthvað"
Jóhannes Kristinn Bjarnason.
Jóhannes Kristinn Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Kristinn Bjarnason hefur verið utan hóps í tveimur af fyrstu þremur leikjum Íslandsmeistara Víkings í Bestu deildinni til þessa. Hann var þó ónotaður varamaður í sigri liðsins gegn KA á Akureyri í umferð tvö.

Jói Bjarna, eins og hann er kallaður, skrifaði undir þriggja ára samning við Víking fyrr á þessu ári. Hann gekk í raðir Víkings eftir stutt stopp hjá danska B-deildarfélaginu Kolding.

„Ég hugsa að Jóhann Kristinn hljóti að fá að fara á láni í FH eða eitthvað," sagði Baldvin Már Borgarsson í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag en Jóhannes var orðaður við FH áður en hann fór í Víking.

„Þetta meikar ekki sens fyrir hann. Þegar Jóhannes Kristinn fer út á miðju tímabili í fyrra var hann með FotMob einkunn upp á 8,1 að meðaltali. Hann var búinn að vera stórkostlegur þegar hann fer út og þú sérð hvernig hrunið var á KR-liðinu þegar hann fer. Hann átti þvílíka byrjun. Í dag kemst hann ekki í hóp hjá Víkingi."

„Það er hausverkur fyrir Sölva (Geir Ottesen, þjálfara Víkings) að velja úr þessum rosalega hópi," sagði Elvar Geir Magnússon.

Víkingur mætir ÍA í Bestu deildinni í kvöld og verður fróðlegt að sjá hvort Jóhannes komist í hópinn þar.
Útvarpsþátturinn - Öflugri en nokkru sinni fyrr
Slapp
banner
banner