Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 22:50
Brynjar Ingi Erluson
Gríðarlegt áfall fyrir Tottenham - „Ég er niðurbrotinn“
Xavi Simons verður ekki meira með á þessu ári
Xavi Simons verður ekki meira með á þessu ári
Mynd: EPA
Hollenski sóknartengiliðurinn Xavi Simons verður ekki meira með Tottenham á þessu ári eftir að hafa slitið krossband en þetta staðfestir hann með yfirlýsingu í dag.

Simons fór meiddur af velli hálftíma fyrir leikslok í 1-0 sigrinum á Wolves um helgina.

Hollendingurinn gekk í raðir Tottenham frá Leipzig á síðasta ári og komið að ellefu mörkum.

Hann var borinn af velli gegn Wolves sem veit aldrei á gott og hefur hann nú staðfest að hann hafi slitið krossband. Tímabilinu er lokið hjá Simons og mun hann einnig missa af HM með Hollendingum í sumar, en talið er að hann verði ekki klár fyrr en í byrjun 2027.

„Það er sagt að lífið geti verið ósanngjarnt og þannig líður mér á þessari stundu. Tímabilið hefur tekið skyndilegan endi og er ég bara að reyna að vinna úr þessu. Ég er niðurbrotinn og skil ekki neitt í neinu.“

„Eina sem ég vildi er að berjast fyrir liðið og nú hefur það verið rifið frá mér, ásamt HM. Möguleikinn á að spila fyrir þjóð mína er úti. Það mun taka tíma að jafna sig á þessu, en ég mun halda áfram að vera eins góður liðsfélagi og ég get. Ég er í engum vafa um að saman getum við unnið þessa baráttu.“

„Ég geng þennan veg áfram, leiddur af trú, styrk, seiglu og sannfæringu á meðan ég tel niður dagana um að komast aftur út á völl. Sýnið mér þolinmæði. COYS (Come on you Spurs),“
sagði Simons.

Tottenham er í harðri fallbaráttu og er þetta því þungt högg fyrir liðið. Það situr í 18. sæti, tveimur stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir af deildinni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner
banner