Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   lau 06. desember 2025 14:50
Brynjar Ingi Erluson
Hetja Villa: Berjumst fram á síðustu stundu
Emi Buendía gerði dramatískt sigurmark og kom Villa inn í titilbaráttuna
Emi Buendía gerði dramatískt sigurmark og kom Villa inn í titilbaráttuna
Mynd: EPA
Argentínumaðurinn Emi Buendía var hetja Aston Villa í 2-1 sigrinum á Arsenal á Villa Park í dag.

Buendía skoraði sigurmarkið á 95. mínútu í uppbótartíma eftir mikinn darraðardans í teig Arsenal-manna.

Villa er aðeins þremur stigum á eftir Arsenal eftir fimmtán umferðir og titilbaráttan opnuð upp á gátt.

„Ótrúlegt. Síðustu vikur höfum við sýnt mikinn karakter og komið til baka í leikjum. Þetta er ótrúlegur karakter og bardagi gegn toppliði deildarinnar. Við berjumst fram á síðustu stundu,“ sagði Buendía.

Lærisveinar Unai Emery hafa unnið níu leiki og aðeins tapað þremur á tímabilinu.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 29 19 7 3 58 22 +36 64
2 Man City 28 18 5 5 57 25 +32 59
3 Man Utd 28 14 9 5 50 38 +12 51
4 Aston Villa 28 15 6 7 38 30 +8 51
5 Liverpool 28 14 6 8 47 37 +10 48
6 Chelsea 28 12 9 7 49 33 +16 45
7 Brentford 28 13 4 11 44 40 +4 43
8 Everton 28 11 7 10 32 33 -1 40
9 Fulham 28 12 4 12 40 42 -2 40
10 Bournemouth 28 9 12 7 44 46 -2 39
11 Brighton 28 9 10 9 38 35 +3 37
12 Sunderland 28 9 10 9 29 34 -5 37
13 Newcastle 28 10 6 12 40 42 -2 36
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 28 7 10 11 37 47 -10 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 28 7 6 15 26 41 -15 27
18 West Ham 28 6 7 15 34 54 -20 25
19 Burnley 28 4 7 17 32 56 -24 19
20 Wolves 29 2 7 20 20 51 -31 13
Athugasemdir
banner
banner