Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   lau 07. mars 2026 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Slot: Næstum alveg eins leikur og síðast
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Arne Slot var ánægður með sigur Liverpool á útivelli gegn Wolves er liðin mættust í 16-liða úrslitum enska bikarsins í gærkvöldi.

Liverpool var talsvert sterkari aðilinn en staðan var markalaus í leikhlé. Vinstri bakvörðurinn Andy Robertson var hetjan í seinni hálfleik þar sem hann skoraði og lagði upp.

Þetta var hefndarsigur hjá Liverpool eftir óheppilegt tap á sama leikvangi í miðri viku. Liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni og báru Úlfarnir sigur úr býtum þrátt fyrir að Liverpool hafi verið sterkari aðilinn.

„Við sköpuðum meira í kvöld heldur en í leiknum hérna í miðri viku og það er ástæðan fyrir því að við sigruðum," sagði Slot eftir lokaflautið, en Liverpool heimsækir Galatasaray í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á þriðjudagskvöldið.

„Þetta var nánast alveg eins leikur og fyrir þremur dögum, tölfræðin er næstum því nákvæmlega sú sama, og það er svekkjandi að þeir skori úr eina færinu sem þeir fá í leiknum. Í síðasta leik fengu þeir eitt færi og skoruðu tvö mörk og við fengum aftur mark á okkur í uppbótartíma. Við erum ánægðir að vera komnir í 8-liða úrslitin, núna hefjum við undirbúning fyrir stórleikinn í Istanbúl."

Slot hrósaði Robertson í hástert en hann er orðinn varaskeifa fyrir Milos Kerkez í baráttunni um byrjunarliðssætið í vinstri bakvarðarstöðunni.

„Strákarnir vilja allir spila hvern einasta leik og það er bara ekki hægt. Robbo sinnti vinnunni sinni mjög vel í dag, hann átti virkilega góðan leik. Hann er mjög verðmætur fyrir félagið, þetta er mikill fagmaður sem leggur sig allan fram í hvert einasta sinn sem við þurfum á honum að halda. Hann býr yfir miklum gæðum og er með frábæran persónuleika. Hann er góður varnarlega og mjög rólegur á boltann.

„Á þeim tíma sem ég hef verið við stjórnvölinn hefur hann gefið allt fyrir klúbbinn. Hann elskar félagið og að spila fyrir framan stuðningsmennina."


Slot var einnig spurður út í hinn 17 ára gamla Rio Ngumoha sem fékk tækifæri í fremstu víglínu.

„Hann er mjög sérstakur leikmaður, hann er bara 17 ára gamall og gat haft svona mikil áhrif á leikinn eins og hann gerði í dag. Það er undir honum komið að finna stöðugleika í frammistöðum og sýna gæðin sín í hverjum einasta leik. Þessi frammistaða í kvöld ætti að hjálpa sjálfstraustinu."

Slot sneri sér að lokum að Florian Wirtz sem er kominn aftur eftir meiðsli. Hann fékk að spila síðustu 25 mínútur leiksins.

„Ég er mjög ánægður að vera búinn að fá Florian og fleiri aftur úr meiðslum. Það er eðlilegt að frammistaða leikmanna verði verri þegar það eru alltaf sömu leikmennirnir að spila hvern einasta leik. Andleg og líkamleg þreyta spila stórt hlutverk og koma niður á frammistöðunni innan vallar.

„Það er mjög mikilvægt að fá þessa menn úr meiðslum því það eykur breiddina. Ég get þá haft meiri áhrif á leiki með skiptingum af bekknum og hvílt leikmenn af og til."


   06.03.2026 18:59
Slot: Ætlum að reyna að vinna báðar keppnirnar

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner