Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
banner
   fös 06. mars 2026 18:59
Ívan Guðjón Baldursson
Slot: Ætlum að reyna að vinna báðar keppnirnar
Mynd: EPA
Arne Slot svaraði spurningum á fréttamannafundi sem haldinn var í gær fyrir leik Liverpool gegn Wolves í enska bikarnum sem fer fram í kvöld.

Liverpool heimsótti Wolves, sem vermir botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar, fyrir nokkrum dögum og tapaði óvænt. Slot segir að sínir menn verði að hafa betur í bikarnum eftir óheppnistap í deildinni.

„Við vorum óheppnir að tapa gegn Wolves. Við héldum boltanum mjög vel en sköpuðum ekki sérlega mikið af færum, þetta er ekki í fyrsta sinn sem það gerist á tímabilinu. Við sköpuðum samt nóg af færum til að skora nokkur mörk, en við nýttum þau ekki," sagði Slot.

„Svo komast þeir í fyrstu sóknina sína og skora mark og það er heldur ekki í fyrsta sinn sem við lendum í því á tímabilinu að andstæðingarnir skora úr sinni fyrstu sókn.

„Eftir að þeir komust yfir sköpuðum við mikið af góðum færum, jöfnuðum metin en klúðruðum alltof oft. Þeir áttu svo marktilraun utan vítateigs sem breytti um stefnu af varnarmanni og endaði í netinu til að sigra leikinn. Það er erfitt að sætta sig við þannig tap og við erum búnir að grandskoða leikinn. Við vitum að við verðum að vera betri annað kvöld og það er markmiðið."


Liverpool er úr leik í titilbaráttu úrvalsdeildarinnar en Slot segir að markmið liðsins sé að reyna að vinna bæði enska bikarinn og Meistaradeild Evrópu.

„Hver einasti leikur sem við spilum er mikilvægur fyrir okkur og hver einasta keppni sem við tökum þátt í sömuleiðis. Við erum ennþá í tveimur keppnum og ætlum að reyna að vinna þær báðar. Það er það eina sem er í boði hjá þessu félagi, að reyna að vinna hvern einasta leik."
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
Athugasemdir
banner