Fulham 0 - 1 Southampton
0-1 Ross Stewart ('90 , víti)
0-1 Ross Stewart ('90 , víti)
Það var dramatík þegar Championship lið Southampton heimsótti úrvalsdeildarlið Fulham í enska bikarnum.
Fulham var með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik og kom boltanum í netið en markið var dæmt af.
Daniel Peretz, markvörður Southampton, tók markspyrnu en það fór ekki betur en svo að hann negldi í samherja og boltinn barst til Rodrigo Muniz sem skoraði. Markið var hins vegar dæmt af þar sem boltinn var á ferð þegar Peretz sparkaði í hann.
Fulham skoraði aftur í seinni hálfleik en Timothy Castagne var dæmdur rangstæður og markið því dæmt af.
Á lokamínútu venjulegs leiktíma fékk Southampton vítaspyrnu þegar Joachim Andersen braut á Finn Azaz. Ross Stewart steig á punktinn og skoraði og tryggði Southampton dramatískan sigur.
Athugasemdir



