Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   lau 28. mars 2026 16:44
Brynjar Ingi Erluson
U17: Stórt tap gegn Ítölum - Sigurður Breki fór af velli eftir fjórar mínútur
Eimskip
Mynd: KSÍ
Íslenska drengjalandsliðið skipað leikmönnum 17 ára og yngri tapaði fyrir Ítalíu, 4-0, í öðrum leiknum í seinni umferðinni í undankeppni EM í dag.

Ísland tapaði fyrsta leiknum í seinni umferðinni fyrir Rúmeníu, 5-2, og annað tapið kom í dag.

Diego Perillo, leikmaður Empoli, skoraði tvö mörk og þá skoruðu þeir Thomas Corigliano, leikmaður Juventus, og Edoardo Biondini, liðsfélagi Perillo í Empoli, eitt.

Sigurður Breki Kárason, sem skoraði á dögunum í úrslitaleik Lengjubikarsins með KR og í leiknum gegn Rúmeníu, meiddist í byrjun leiksins í dag. Vondar fréttir fyrir KR-ingar svona rétt fyrir 1. umferð Bestu deildarinnar.

Síðasti leikur Íslands í riðlinum er gegn Portúgal á þriðjudag en sá leikur hefst klukkan 16:00.


Slapp
banner
banner