Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
   lau 28. mars 2026 15:14
Haraldur Örn Haraldsson
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
Mynd: Víkingur Ó.

„Fyrst og fremst vil ég segja til hamingju Þróttarar með sigurinn. Ég óska þeim allt hið besta í sumar, þeir eru frábært lið og mjög vel þjálfað," sagði Tomasz Luba þjálfari Víkings Ólafsvík eftir 3-1 tap fyrir Þrótturum í Mjólkurbikarnum.


Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 -  1 Víkingur Ó.

„Þetta var mjög krefjandi verkefni hjá okkur í dag. Við vorum aðeins óheppnir að fá Þróttarana strax á þessum tímapunkti. Í fyrri hálfleik voru Þróttarar miklu betri, en ég er mjög ánægður með seinni hálfleikinn. Við vorum mjög góðir, mjög agressívir, þetta var í raun 50/50 leikur í seinni hálfleik. Við þurfum að taka þennan seinni hálfleik með okkur í framtíðina," sagði Tomasz.

Þróttarar eru einni deil fyrir ofan Víkinga og auk þess eru þeir líkast til eitt besta lið Lengjudeildarinnar. Tomasz segir að það hafi verið góð áskorun að máta sig við þá.

„Það er alltaf gaman að spila á móti svona liðum, og gaman að leikgreina þá. Þú verður alltaf betri og betri ef þú spilar gegn svona liðum. Þróttararnir sýndu okkur í dag, okkar veikleika. Bara geggjað að spila á móti svona liðum, engin spurning. Það er ekkert eitthvað lélegt að koma hingað og tapa 3-1, mér fannst við mjög góðir í seinni hálfleik, sem eitthvað sem við ætlum að taka með," sagði Tomasz.

Víkingar eru í 2. deild, en sú deild lítur út fyrir að verði mjög sterk á komandi tímabili.

„Það sem er mikilvægt hjá okkur er að byrja mótið vel og hugsa um næsta leik. Ég get sagt meira eftir 10. umferð, hvar við verðum og hvernig við spilum. Ég er meðvitaður um að þessi deild verður miklu sterkari en hún var í fyrra, Selfoss, Fjölnir, Haukar. Þetta eru flott og stór lið. Engin spurning að Víkingur Ólafsvík vill vera að berjast við þá, við viljum vera allan tíman í toppbaráttu, það er okkar markmið. Það er ennþá langt í mót, markmiðið okkar núna er að æfa vel, kynnast enn betur, fara í allskonar atriði á vellinum, svo bara sjáum við hvað gerist. Ég er mjög bjartsýnn að þetta lið, þessir strákar sem eru hjá okkur eru mjög efnilegir og flottir karakterar," sagði Tomasz.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner
banner