Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
   lau 28. mars 2026 15:00
Haraldur Örn Haraldsson
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það var auðvitað bara markmiðið (að komast áfram), vinna leikinn og það tókst", sagði Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttara eftir 3-1 sigur gegn Víking Ólafsvík í Mjólkurbikarnum. 


Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 -  1 Víkingur Ó.

„Ég var í raun mjög ánægður með frammistöðuna allan tíman. Ég var aðeins búinn að kynna mér Víkingana, og sá þá spila um daginn. Ég sá að þetta yrði erfitt verk, þeir eru vel skipulagðir, liggja djúpt til baka og eru vel skipulagðir, og gefa lítið af færum á sér. Þannig ég vissi það svo sem að þetta yrði engin flugeldasýning, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þannig það var mjög mikilvægt að ná markinu tiltölulega snemma, svo það yrði ekkert 'panic' ástand. Svo snýst þetta bara um smá þolinmæði, veðra þá svolítið niður og halda í boltann. Þannig þetta æxlaðist og þróaðist rétt og vel," sagði Sigurvin.

Þetta var fyrsti mótsleikur Þróttar á tímabilinu þar sem Lengjudeildin byrjar ekki fyrr en eftir um mánuð.

„Við erum mjög sterkir, mjög fínir, erum 'fit' og spilamennskan er bara fín. Þannig þetta er allt samkvæmt plani," sagði Sigurvin.

Þrótturum var spáð 2. sæti í Lengjudeildinni í síðustu spá sem var birt á vefnum. Sigurvin segist spenntur fyrir þá áskorun að vera álitinn eitt sterkasta lið deildarinnar.

„Það er bara frábær áskorun, og ég tek henni fagnandi. Þróttur á að vera á þeim stað, við þurfum að fagna þeirri tilfinningu, og þeirri áskorun að okkur sé spáð góðu gengi. Frekar en að vera einhverjir 'underdogs' eða brandaralið. Ég hlakka til að takast á við þá áskorun að vera frekar 'favorites' heldur en 'underdog'," sagði Sigurvin.

Sigurður Egill Lárusson kom til liðsins frá Val í vetur, en hann átti virkilega góðan leik fyrir Þrótt í dag.

„Hann er algjör fagmaður eins og allir vita, beint og óbeint þá hækkar hann standardinn hjá félaginu og inn í klefa. Frábær leikmaður, og með marga af þessum frábæru kostum. Hleypur endalaust, gefst aldrei upp og meiðist ekki neitt. Fyrir utan öll hin gæðin þá er þetta bara mikill fengur fyrir okkur,"  sagði Sigurvin.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner
banner