Heiða Ragney Viðarsdóttir var ekki lengi að opna markareikninginn með sænska félaginu Eskilstuna en hún gerði fyrra mark liðsins í 2-1 sigri á Vittsjö í 1. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Heiða Ragney kom til Eskilstuna frá Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks undir lok síðasta árs og gerði tveggja ára samning við félagið.
Hún var í byrjunarliðinu í fyrsta deildarleik tímabilsins í dag og skoraði eftir aðeins fjórtán mínútur.
Eskilstuna vann leikinn 2-1 en sigurmarkið gerði Rylie Combs í uppbótartíma. Frábær byrjun Eskilstuna sem mætir Växjö í næstu umferð.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir og Emelía Óskarsdóttir voru báðar í byrjunarliði FCK sem vann Österbro, 3-1, í umspili um sæti í dönsku úrvalsdeildina.
Telma Sif Búadóttir byrjaði hjá Österbro. FCK er í öðru sæti riðilsins með 6 stig en Österbro án stiga í neðsta sæti.
Glódís Perla Viggósdóttir kom inn af bekknum hjá Bayern München sem vann Nurnberg, 2-0, í þýsku deildinni. Glódís kom inn á í hálfleik hjá Bayern sem er með 61 stig á toppnum, fjórtán stigum á undan Wolfsburg sem er í öðru.
Diljá Ýr Zomers byrjaði hjá norsku meisturunum í Brann sem björguðu stigi í 1-1 jafntefli gegn Rosenborg í annarri umferð deildarinnar.
Landsliðskonan fór af velli á 57. mínútu en Brann er á toppnum með 4 stig.
Athugasemdir

