Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 13:27
Brynjar Ingi Erluson
Frammistaðan mikil vonbrigði - „Guði sé lof að við spiluðum ekki þann leik“
Emi Martínez
Emi Martínez
Mynd: EPA
Argentínski markvörðurinn Emi Martínez var vonsvikinn með frammistöðuna í 2-1 sigrinum á Máritaníu í vináttulandsleik í Buenos Aires í nótt, en hann segist guðslifandi feginn að Finalissima-leiknum gegn Spánverjum hafi verið aflýst.

Upphaflega átti Argentína að mæta Spánverjum í Finalissima, en þar mætast Evrópumeistararnir gegn Suður-Ameríkumeisturunum.

Leikurinn átti upphaflega að fara fram í Katar, en vegna stríðsástandsins í Mið-Austurlöndunum var ákveðið að færa leikinn. Ekki náðist samkomulag um nýjan leikstað og var leiknum því aflýst.

Argentínumenn spiluðu í staðinn við Máritaníu, sem er í 115. sæti heimslistans, og rétt hafði þar 2-1 sigur eftir algerlega ömurlegan síðari hálfleik.

„Þetta var mjög slakt og líklega einn slakasti vináttulandsleikur sem við höfum spilað. Það vantaði ákefð, samheldni og hraða. Þetta er eitthvað sem við þurfum að greina, en við eigum að skila betri frammistöðu þegar við klæðum okkur í landsliðstreyjuna.“

„Ég reyni að vera klár ef þeir þarfnast mín, en mér fannst þeir bara sækja allt of mikið. Við unnum en þekktum andstæðinginn ekki nógu vel. Þeir spiluðu eins og lífið væri undir á meðan við þurfum að sýna miklu meira hjarta.“

„Guð sé lof að Finalissima var aflýst því ef við hefðum spilað svona þá hefðum við tapað leiknum,“
sagði Martínez.
Slapp
Athugasemdir
banner