Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 14:15
Brynjar Ingi Erluson
Kom að Insigne í tárum - „Ég var klár í að labba aftur til Napolí“
Lorenzo Insigne vildi fara aftur til Napoli en endaði hjá Pescara
Lorenzo Insigne vildi fara aftur til Napoli en endaði hjá Pescara
Mynd: EPA
Lorenzo Insigne samdi á dögunum við Pescara í B-deildinni á Ítalíu, en hann er kominn aftur heim eftir að hafa eytt síðustu árum í Kanada.

Insigne er 34 ára gamall og hafði verið í leit að nýju félagi í dágóðan tíma.

Hann segist hafa fengið símtal frá Napoli, þar sem hann var áður fyrirliði og með bestu leikmönnum liðsins, en hann var tilbúinn að gera allt til þess að semja við félagið.

„Ég fékk nokkur símtöl erlendis frá, en fólkið sem ég talaði við hafði áhyggjur af því að ég hafði æft einn frá júní og fram í janúar. Ég sagði alltaf að líkaminn minn þyrfti aðeins 15-20 daga til þess að komast í form, en Napoli vildi leikmann sem var klár í slaginn.“

„Ég hefði gengið alla leið til Napolí. Félagið hafði samband við mig nokkrum vikum áður en ég skrifaði undir hjá Pescara og ég gat ekki sofið. Ég reyndi að gera allt til að klæðast treyju Napoli aftur og bauðst til að taka á mig lágmarks mánaðarlaun sem er í kringum 1500 evrur. Ef ég myndi sanna það að ég er enn í formi þá myndi ég framlengja, annars myndi ég yfirgefa félagið.“

„Ég var ekki leiður yfir ákvörðun félagsins og virði það, en Pescara á líka stóran stað í hjarta mínu á eftir Napoli,“
sagði Insigne.

Hann ræddi einnig brottför sína frá Napoli fyrir fjórum árum, en að það hafi þurft að gerast enda hafi hann verið algerlega búinn á því á þeim tíma. Mikil ábyrgð var á herðum hans og það hafi tekið verulega á.

„Ég táraðist þegar félagið hringdi í mig í janúar. Eiginkonan spurði mig hvort ég væri að gráta og ég viðurkenndi það auðvitað. Ég gerði það af því ég elska Napoli. Eftir tólf ár hafði ég hvorki andlega né líkamlega orku. Aðskilnaðurinn var ákvörðun beggja aðila og ekki hægt að kenna einum eða öðrum um. Þetta var ákvörðun sem þurfti að taka, en ég bjóst ekkert endilega við því að enda í Kanada,“ sagði Insigne.

Insigne er nú kominn á staðinn sem kom honum á kortið. Hann skoraði 20 mörk fyrir Pescara í B-deildinni tímabilið 2011-2012, þá á láni frá Napoli, og hjálpaði að koma liðinu upp í efstu deild áður en hann sneri aftur til Napoli.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
Athugasemdir
banner