Rodri, miðjumaður Manchester City, hefur sagt að viðtalið við hann þar sem hann sagðist ekki geta hafnað stærstu félögum heims hafa verið tekið úr samhengi.
Miðjumaðurinn á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Man City en hann hefur verið orðaður við Real Madrid síðustu mánuði.
Hann var í útvarpsviðtali hjá Onda Cero þar sem hann virðist vera að daðra við Real Madrid, en hann var spurður út í þetta viðtal í landsleikjaverkefninu með Spánverjum um helgina.
„Ég er orðinn vanur þessu. Þeir taka 50 mínútna viðtal og klippa þetta eins og þeir vilja. Ég hef engu við að bæta,“ sagði Rodri.
Rodri, sem var valinn besti leikmaður heims árið 2024, er uppalinn hjá Atlético Madríd, en vill samt ekki útiloka það að spila með Real í framtíðinni.
Athugasemdir



