Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Mikael fiskaði vítaspyrnu í sigri gegn Roma
Fór meiddur af velli
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Genoa 2 - 1 Roma
1-0 Junior Messias ('52 , víti)
1-1 Evan Ndicka ('55 )
2-1 Vitinha ('80 )

Mikael Egill Ellertsson var á sínum stað í byrjunarliði Genoa sem tók á móti stórveldi AS Roma í ítalska boltanum í dag.

Staðan var markalaus eftir afar bragðdaufan fyrri hálfleik, þar sem heimamenn í Genoa fengu þó besta færið.

Í síðari hálfleik náði Genoa forystunni þegar Junior Messias skoraði úr vítaspyrnu eftir að brotið var á Mikael Agli innan teigs.

Evan Ndicka jafnaði metin skömmu síðar eftir skallatennis í kjölfar hornspyrnu. Staðan hélst jöfn, 1-1, stærstan hluta seinni hálfleiksins en heimamenn í liði Genoa voru hættulegra liðið.

Mikael Egill fór meiddur af velli á 79. mínútu og skoruðu liðsfélagar hans úr innkastinu sem fylgdi. Vitinha kláraði af stuttu færi eftir frábært spil í gegnum vörn Rómverja.

Gestirnir reyndu að svara fyrir sig á lokakaflanum en sköpuðu litla sem enga hættu, svo lokatölur urðu 2-1.

Þetta eru afar dýrmæt stig fyrir Genoa, sem er sex stigum fyrir ofan fallsvæðið. Hins vegar er þetta óheppilegt fyrir meistaradeildarvonir Roma, sem missir fjórða sætið til Como á markatölu.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner