Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 20:46
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Endurkomusigur í Hafnarfirði - Hafnir skoruðu níu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Hafnir
Það fóru þrír leikir fram í C-deild Lengjubikarsins í dag þar sem gríðarlega skemmtilegur slagur fór fram í Hafnarfirði.

RB spilaði við Skallagrím í Knatthúsi Hauka og leiddu Borgnesingar með tveimur mörkum í leikhlé. Davíð Freyr Bjarnason og Pétur Lárusson skoruðu mörkin, en Sigfús Kjartan Nikulásson tók til sinna ráða í síðari hálfleik.

Sigfús sat á bekknum í fyrri hálfleik en var skipt inn í leikhlé. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu á þrettán mínútna kafla til að snúa stöðunni við. Sigfús er fæddur 2006 og kom við sögu í einum leik með KÁ í fjórðu deildinni í fyrra.

Það ríkti mikil spenna á lokakafla leiksins allt þar til í uppbótartíma, þegar Aron Hólm Júlíusson innsiglaði frækinn endurkomusigur RB.

Þetta er fyrsti sigur RB í Lengjubikarnum í ár, liðið er með þrjú stig eftir þrjár umferðir. Skallagrímur er án stiga eftir tvo leiki.

KFR lagði þá BF 108 að velli í toppslag og var Bjarni Þorvaldsson atkvæðamestur með tvennu. Lokatölur 4-0 og er KFR með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir, þremur stigum meira heldur en Boltafélagið.

Að lokum rúlluðu Hafnir yfir Uppsveitir þar sem lokatölur urðu 9-0. Byrjunarliðsmenn Hafna skiptu mörkunum bróðurlega á milli sín áður en Ottó Helgason og Alexander Bjarki Rúnarsson komu inn af bekknum til að skora sitthvora tvennuna.

Hafnir eru með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Uppsveitir eru án stiga.

RB 4 - 2 Skallagrímur
0-1 Davíð Freyr Bjarnason ('16)
0-2 Pétur Lárusson ('38)
1-2 Sigfús Kjartan Nikulásson ('62)
2-2 Sigfús Kjartan Nikulásson ('73)
2-3 Sigfús Kjartan Nikulásson ('75)
2-4 Aron Hólm Júlíusson ('91)

KFR 4 - 0 BF 108
1-0 Helgi Valur Smárason ('16)
2-0 Bjarni Þorvaldsson ('18)
3-0 Bjarni Þorvaldsson ('73)
4-0 Szymon Broniszewski ('87)

Hafnir 9 - 0 Uppsveitir
Anton Freyr Hauks Guðlaugsson
Bergsveinn Andri Halldórsson
Jón Arnór Sverrisson
Viktor Freyr Pálsson
Rafn Edgar Sigmarsson
Ottó Helgason (2)
Alexander Bjarki Rúnarsson (2)
Athugasemdir
banner