Það fóru tveir leikir fram í B-deild Lengjubikars karla í dag þar sem Selfoss vann stórsigur á Sindra. Leikurinn átti að fara fram á Selfossi en var færður á Leiknisvöll í Breiðholt vegna mikillar snjókomu.
Fyrrum landsliðsmaðurinn Viðar Örn Kjartansson skoraði tvennu í 5-0 sigri.
Elías Karl Heiðarsson setti einnig tvennu og skoraði Elvar Orri Sigurbjörnsson eitt. Selfoss er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir á meðan Sindri er enn án stiga. Björn Daníel Sverrisson var ónotaður varamaður í leikmannahópi Sindra.
Selfoss heimsækir Víking Ólafsvík í toppbaráttunni um næstu helgi.
Dalvík/Reynir hafði þá betur gegn Hetti er liðin mættust í Dalvík og var staðan jöfn, 1-1, í leikhlé. Hektor Bergmann Garðarsson skoraði fyrsta markið snemma leiks en Eyþór Atli Árnason jafnaði metin fyrir gestina.
Í síðari hálfleik voru það Sævar Þór Fylkisson og Almar Örn Róbertsson sem réðu úrslitum með sitthvoru markinu á þriggja mínútna kafla. Lokatölur 3-1.
Dalvík er með fullt hús stiga eftir þrjár fyrstu umferðirnar á meðan Höttur er án stiga eftir tvær umferðir.
Selfoss 5 - 0 Sindri
1-0 Viðar Örn Kjartansson
2-0 Viðar Örn Kjartansson
3-0 Elías Karl Heiðarsson
4-0 Elvar Orri Sigurbjörnsson
5-0 Elías Karl Heiðarsson
Dalvík/Reynir 3 - 1 Höttur
1-0 Hektor Bergmann Garðarsson ('7)
1-1 Eyþór Atli Árnason ('16)
2-1 Sævar Þór Fylkisson ('67)
3-1 Almar Örn Róbertsson ('69)
Athugasemdir

