Enska B-deildarfélagið Watford hefur ráðið Edward Still sem nýjan stjóra félagsins en hann gerir tveggja og hálfs árs samning við Lundúnafélagið.
Still er bróðir Will Still, fyrrum stjóra Southampton og Reims, en hann tekur við keflinu af Javi Gracia sem sagði starfi sínu lausu eftir að hafa aðeins stýrt liðinu í þrjá mánuði.
Eins og áður kom fram er samningur Still til 2028, en hann var síðast bráðabirgðaþjálfari Anderlecht í Belgíu og þjálfaði einnig Eupen og Charleroi.
Hann mun stýra liðinu í fyrsta sinn gegn Preston um helgina.
„Ég er ótrúlega spenntur og stoltur að vera kominn hingað. Þetta er félag sem hefur skipað stóran sess í enskum fótbolta og er með magnaða sögu. Öll einbeiting verður á því að vinna leiki eins fljótt og auðið er og ná því því besta úr leikmönnunum. Stuðningsmenn geta búist við því að sjá grimmt, varnarlega þétt og hraðan sóknarleik frá liðinu,“ sagði Still.
Charlie Daniels, sem stýrði Watford í síðustu tveimur leikjum, verður áfram í þjálfarateyminu og þá mun Karim Belhohicine einnig koma inn og aðstoða Still.
Watford er í 11. sæti með 44 stig en það hefur ekki unnið í síðustu sex deildarleikjum eða síðan 1. janúar.
A warm welcome to Ed Still, Watford FC’s new Head Coach ???? pic.twitter.com/DtnsGtgQSe
— Watford Football Club (@WatfordFC) February 9, 2026
Athugasemdir




