Tyrkneska undrið Kenan Yildiz hefur náð munnlegu samkomulagi við ítalska félagið Juventus um framlengingu á nýjum samningi, en það er Fabrizio Romano sem segir frá þessum tíðindum í dag.
Yildiz, sem er tvítugur, hefur komið að sautján mörkum með Juventus á þessari leiktíð, en hann hefur verið orðaður við mörg af stærstu félögum heims síðustu mánuði.
Real Madrid er meðal félaga sem hafa sýnt honum mikinn áhuga, en nú stefnir allt í að hann muni framlengja samning sinn á Ítalíu.
Romano greinir frá því að Juventus hafi náð munnlegu samkomulagi við Yildiz um nýjan fjögurra ára samning sem mun gera hann að einum launahæsta leikmanni félagsins.
Ítalskir miðlar greina frá því að félagið sé þá með möguleika á að framlengja samninginn um ár til viðbótar, en talið er að Yildiz og fjölskylda hans fái sex milljónir evra við undirskrift samningsins.
Áætlað er að nýr samningur Yildiz verði kynntur um eða rétt eftir helgi.
Athugasemdir

