Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
banner
   lau 07. febrúar 2026 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Estevao trúði ekki að Rosenior hafði verið atvinnumaður
Rosenior lék meðal annars fyrir Brighton og Fulham á ferli sínum sem leikmaður.
Rosenior lék meðal annars fyrir Brighton og Fulham á ferli sínum sem leikmaður.
Mynd: EPA
Chelsea var slegið úr leik í undanúrslitum deildabikarsins í vikunni þegar liðið heimsótti nágranna sína í Arsenal.

Liam Rosenior þjálfari var á hliðarlínunni og kom atvik upp þegar Arsenal hreinsaði boltann úr eigin vítateig að hann barst til Rosenior.

Þjálfarinn reyndi að taka á móti boltanum en mistókst herfilega ætlunarverk sitt. Eftir leikinn gerðu lærlingar hans í liði Chelsea óspart grín að honum.

„Strákarnir eru búnir að sýna mér myndbandið og við hlógum saman. Estevao segist ekki trúa að ég hafi nokkurn tímann verið atvinnumaður í fótbolta," sagði Rosenior brosandi á fréttamannafundi í gær.

Chelsea heimsótti botnlið Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag og skóp þægilegan sigur þar sem Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik.


Chelsea manager Liam Rosenior tries to control the ball when it comes towards him on the volley
by
u/sepi0l_45 in
soccer

Athugasemdir
banner