Það fara fjórir leikir fram í Lengjubikarnum í dag þar sem þrír leikir hefjast klukkan 14:00 og einn klukkan 16:00. Livey sýnir beint frá.
Það er einn leikur í karlaflokki sem átti að fara fram í gær en var frestað. ÍBV tekur þar á móti Leikni R. á Hásteinsvelli.
Í kvennaflokki spilar FH heimaleik við Grindavík/Njarðvík, sem eru nýliðar í Bestu deildinni.
Tindastóll spilar á sama tíma við ÍBV í Akraneshöllinni áður en lokaleik dagsins ber að garði á Seltjarnarnesi.
Þar mætast Grótta og KR í áhugaverðum slag um vestasta hluta höfuðborgarsvæðisins.
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 4
14:00 ÍBV - Leiknir R. (Hásteinsvöllur)
Lengjubikar kvenna - A-deild, riðill 1
14:00 FH - Grindavík/Njarðvík (Skessan)
Lengjubikar kvenna - A-deild, riðill 2
14:00 Tindastóll - ÍBV (Akraneshöllin)
Lengjubikar kvenna - B-deild
16:00 Grótta - KR (Vivaldivöllurinn)
Athugasemdir



