Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
banner
   lau 07. febrúar 2026 19:35
Ívan Guðjón Baldursson
England: Brentford vann í Newcastle
Mynd: Brentford
Mynd: Brentford
Newcastle 2 - 3 Brentford
1-0 Sven Botman ('24)
1-1 Vitaly Janelt ('37)
1-2 Igor Thiago ('45+2, víti)
2-2 Bruno Guimaraes ('70, víti)
2-3 Dango Ouattara ('85)

Newcastle United og Brentford áttust við í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni sem bauð upp á mikla skemmtun.

Sven Botman kom heimamönnum í Newcastle yfir með skalla eftir hornspyrnu frá Bruno Guimaraes en gestirnir náðu að jafna leikinn og taka svo forystuna fyrir leikhlé.

Vitaly Janelt skallaði fyrirgjöf í netið til að jafna áður en Igor Thiago tók forystuna með marki úr vítaspyrnu eftir að boltinn hafði farið í hendina á Jacob Murphy innan vítateigs. Handleggurinn var niður með síðu og hafði Murphy engan tíma til að færa hann frá, en samt sem áður var dæmd vítaspyrna og gult spjald.

Leikurinn lokaðist í síðari hálfleik þar sem liðin áttu í meiri erfiðleikum með að skapa sér færi, en heimamenn náðu að gera jöfnunarmark úr vítaspyrnu á 79. mínútu eftir klaufalegt brot Michael Kayode innan teigs. Guimaraes skoraði af vítapunktinum en sigurmark leiksins leit dagsins ljós aðeins sex mínútum síðar eftir mikinn klaufagang í varnarleik Newcastle.

Varnarlínan sofnaði á verðinum og slapp Dango Ouattara innfyrir til að skora í gegnum klofið á Nick Pope.

Newcastle fékk færi til að jafna á lokamínútunum en tókst það ekki svo lokatölur urðu 2-3.

Brentford er í sjöunda sæti með 39 stig eftir 25 umferðir, aðeins fjórum stigum á eftir Chelsea í evrópusæti.

Newcastle situr eftir með 33 stig eftir þriðja tapleikinn í röð í úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner