Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   lau 07. febrúar 2026 17:05
Brynjar Ingi Erluson
England: Gyökeres skoraði tvö og Arsenal með níu stiga forystu - Söguleg þrenna Palmer
Viktor Gyökeres er að hitna
Viktor Gyökeres er að hitna
Mynd: EPA
Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik
Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik
Mynd: EPA
Crysencio Summerville skoraði fimmta leikinn í röð
Crysencio Summerville skoraði fimmta leikinn í röð
Mynd: EPA
Arsenal er komið með níu stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa lagt Sunderland að velli, 3-0, á Emirates-leikvanginum í dag. Cole Palmer skoraði þá sögulega þrennu í 3-1 sigri Chelsea á Úlfunum á Molineux-leikvanginum í Wolverhampton.

Arsenal-menn eru til alls líklegir á þessu tímabili og í baráttu um alla titla.

Stærsta markmiðið er að vinna úrvalsdeildina og færist liðið nú nær því eftir sigur dagsins.

Það þurfti þolinmæði til að brjóta Sunderland-menn á bak aftur og þurfti einstaklingsframtak til þess. Leandro Trossard fékk boltann á vinstri vængnum, lagði hann út fyrir teiginn og á Martin Zubimendi sem hamraði boltanum í nærstöngina og í netið. Stórglæsilegt mark hjá Spánverjanum sem var hans fimmta deildarmark á tímabilinu.

Sænski sóknarmaðurinn Viktor Gyökeres er byrjaður að finna sig hjá Arsenal, en hann skoraði annað markið á 66. mínútu. Aftur var það Trossard sem átti þátt í undirbúningnum, en hann stakk boltanum inn á Kai Havertz, sem lagði hann síðan á Gyökeres sem skoraði með bylmingsskoti af stuttu færi.

Sjöunda deildarmark Gyökeres og hans tólfta í öllum keppnum fyrir Arsenal. Hann bætti við áttunda deildarmarkinu undir lok leiks. Gabriel Martinelli fékk skoppandi bolta við miðsvæðið, lyfti honum yfir varnarmann Sunderland, keyrði upp allan völlinn áður en hann lagði boltann til hliðar á Gyökeres sem setti boltann í autt netið.

Annar sigur Arsenal í röð í deildinni sem er með 56 stig, níu stigum meira en keppinautar þeirra í Manchester City, sem fá það erfiða verkefni að mæta Liverpool á Anfield á morgun.

Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik er Chelsea vann botnlið Wolves, 3-1, á Molineux.

Hann kom Chelsea í 1-0 á 13. mínútu eftir að Matt Doherty braut á Joao Pedro í teignum. Chelsea fékk aðra vítaspyrnu tuttugu mínútum síðar er Yerson Mosquera hrinti Joao Pedro í teignum. Mjög heimskulegt hjá Mosquera og aftur var það Palmer sem skoraði af punktinum.

Þremur mínútum síðar fullkomnaði Palmer þrennuna og varð um leið sá fyrsti í sögu deildarinnar til þess að skora þrjár þrennur í fyrri hálfleik í deildinni, en hann skoraði tvær þrennur í fyrri hálfleik árið 2024 gegn Brighton og Everton.

Toluwalase Arokodare minnkaði muninn fyrir heimamenn á 54. mínútu eftir stoðsendingu Adam Armstrong, sem kom til Wolves frá Southampton á dögunum.

Ekkert að ganga hjá Úlfunum sem eru áfram á botninum með 8 stig og ekki langt í það fall liðsins niður í B-deildina verði staðfest. Chelsea er á meðan í 5. sæti með 43 stig og í baráttu um Meistaradeildarsæti.

West Ham vann góðan 2-0 útisigur á Burnley á Turf Moor. Hollendingurinn Crysenscio Summerville er að auka markaðsvirði sitt fyrir sumargluggann.

Hann hefur verið sjóðandi heitur og skoraði fimmta leikinn í röð er Mateus Fernandes stakk boltanum inn fyrir á Summerville sem var í kapphlaupi við Martin Dubravka, markvörð Burnley, en sá hollenski hafði betur, náði að lyfta boltanum yfir Dubravka og í netið.

Taty Castellanos tvöfaldaði forystuna þrettán mínútum síðar með skalla eftir frábæra fyrirgjöf El Hadji Malick Diouf.

Hamrarnir hafa verið að spila mjög vel undanfarnar vikur og unnið þrjá af síðustu fjórum, en næst mætir liðið sjóðandi heitu liði Manchester United í Lundúnum. West Ham er áfram í fallsæti með 23 stig, þremur stigum frá öruggu sæti.

Bournemouth og Aston Villa skildu jöfn, 1-1, á Vitality-leikvanginum í Bournemouth.

Morgan Rogers, langbesti maður Villa á tímabilinu, skoraði mark Villa á 22. mínútu með föstu skoti efst í hægra hornið áður en hinn 19 ára gamli Rayan, arftaki Antoine Semenyo, jafnaði metin fyrir heimamenn á 55. mínútu.

Jafntefli niðurstaðan en Bournemouth er í 11. sæti með 34 stig á meðan Aston Villa er í 3. sæti með 47 stig.

Lærisveinar David Moyes í Everton unnu 2-1 sigur á Fulham á Craven Cottage.

Everton lenti undir eftir óheppilegt sjálfsmark Vitalii Mykolenko er Jordan Pickford varði skot Raul Jimenez í Mykolenko og í eigið net.

Gestirnir tóku við sér í síðari hálfleiknum. Kiernan Dewsbury-Hall jafnaði metin á 76. mínútu og sjö mínútum síðar blakaði Bernd Leno, markvörður Fulham, boltanum neyðarlega í eigið net eftir hornspyrnu gestanna.

Svakalega vandræðalegt allt saman en Everton kvartar ekki. Liðið er í 7. sæti með 37 stig, tveimur stigum frá nágrönnum sínum í Liverpool.

Úrslit og markaskorarar:

Bournemouth 1 - 1 Aston Villa
0-1 Morgan Rogers ('22 )
1-1 Rayan ('55 )

Fulham 1 - 2 Everton
1-0 Vitaliy Mykolenko ('18 , sjálfsmark)
1-1 Kiernan Dewsbury-Hall ('76 )
1-2 Bernd Leno ('83 , sjálfsmark)

Burnley 0 - 2 West Ham
0-1 Crysencio Summerville ('13 )
0-2 Taty Castellanos ('26 )

Wolves 1 - 3 Chelsea
0-1 Cole Palmer ('13 , víti)
0-2 Cole Palmer ('35 , víti)
0-3 Cole Palmer ('38 )
1-3 Tolu Arokodare ('54 )

Arsenal 3 - 0 Sunderland
1-0 Martin Zubimendi ('42 )
2-0 Viktor Gyokeres ('66 )
3-0 Viktor Gyokeres ('90 )
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 25 17 5 3 49 17 +32 56
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 25 14 5 6 36 27 +9 47
4 Man Utd 25 12 8 5 46 36 +10 44
5 Chelsea 25 12 7 6 45 28 +17 43
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Everton 25 10 7 8 28 28 0 37
8 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
9 Sunderland 25 9 9 7 27 29 -2 36
10 Fulham 25 10 4 11 35 37 -2 34
11 Bournemouth 25 8 10 7 41 44 -3 34
12 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 25 7 8 10 35 35 0 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 25 7 8 10 34 43 -9 29
17 Nott. Forest 25 7 5 13 25 38 -13 26
18 West Ham 25 6 5 14 31 48 -17 23
19 Burnley 25 3 6 16 25 49 -24 15
20 Wolves 25 1 5 19 16 48 -32 8
Athugasemdir
banner