Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
   mán 09. febrúar 2026 11:30
Kári Snorrason
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Lengjudeildin
Davíð tók við Njarðvík í haust eftir að hafa gert Vestra að bikarmeistara síðasta sumar.
Davíð tók við Njarðvík í haust eftir að hafa gert Vestra að bikarmeistara síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Magnússon var tilkynntur sem nýr leikmaður Njarðvíkinga í gær.
Guðmundur Magnússon var tilkynntur sem nýr leikmaður Njarðvíkinga í gær.
Mynd: Njarðvík
Guy Smit elti Davíð Smára og gekk til liðs við Njarðvíkinga.
Guy Smit elti Davíð Smára og gekk til liðs við Njarðvíkinga.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Njarðvíkingar eru að leitast eftir hægri bakverði eftir að Alex Freyr Elísson fór óvænt frá félaginu.
Njarðvíkingar eru að leitast eftir hægri bakverði eftir að Alex Freyr Elísson fór óvænt frá félaginu.
Mynd: Fótbolti.net - Stefán Marteinn
Njarðvíkingar hefur verið afar öflugir á leikmannamarkaðnum í vetur og er ljóst að markmiðið er að tryggja sér sæti upp úr Lengjudeildinni.

Liðið tilkynnti í gær komu Guðmundur Magnússon og í kjölfarið ræddi Fótbolti.net við Davíð Smári Lamude, þjálfara liðsins, um nýjustu liðsstyrkinguna og leikmannamál vetrarins.

Erfitt að gera betur
„Við höfum þurft að stækka hópinn og við erum að fá reynslumikla menn í Gumma og Guy. Gummi er leikmaður sem er svolítið öðruvísi en þeir sem við erum með fram á við í liðinu í dag. Hann gefur okkur ákveðna vídd og ég tel það virkilega sterkt af okkur að vera bæta verkfærum í kassann. Ég held að þau lið sem ætli sér langt, þurfa að hafa nóg af verkfærum. Ég er gríðarlega ánægður með þessa liðsstyrkingu.“

„Ég held að það væri erfitt að gera mikið betur en þessar styrkingar. Það sem að er gott við þetta líka er að þetta eru margir íslenskir leikmenn. Það eru íslenskir leikmenn sem vilja koma til okkar og eru að einhverju leyti að velja að koma hingað, eins og með Gumma, frekar en að fara eitthvert annað.

Sama má segja um Guy (Smit) þótt hann sé ekki íslenskur, en hann hefur verið hér lengi, hafði aðra kosti í boði og kaus samt að fara þessa leið með okkur. Þetta gefur okkur ákveðnar vísbendingar um það að menn hafa trú á því sem við erum að gera og það er það sem skiptir máli.“


Sótt stóra karaktera
„Ég hef horft í það að sækja stóra karaktera og hef gert það í gegnum tíðina. Ég held að öll lið þurfa að bæta við leikmönnum sem bæta einhverju í bragðið. Við þurfum ekki að fylla í hópinn bara með hveiti heldur einhverjum kryddum.

Ég held að við höfum gert það mjög vel. Síðan koma ungir leikmenn inn í þetta líka og þeir hafa nýtt tækifærin mjög vel. Það gefur okkur líka ákveðinn styrk og þeir fá að læra af karakterunum sem koma inn í hópinn. Ég held að þeir geta tekið hraðari þroska með því að fá svona stóra karakterana í kringum sig.“


Njarðvík sótti Alex Frey Elísson frá Fram í vetur en hann fór óvænt til Færeyja í upphafi árs. Davíð segir verið að vinna að því að fylla í það skarð og að líklegt sé að frekari tíðindi berist síðar í vikunni.

Komnir:
Guy Smit frá Vestra
Bragi Karl Bjarkason frá FH
Eiður Aron Sigurbjörnsson frá Vestra
Aron Einarsson frá Leikni
Felix Mathaus frá Grænhöfðaeyjum
Hrafn Guðmundsson frá Stjörnunni (var á láni hjá KFA)
Arnleifur Hjörleifsson alfarið frá ÍA (var á láni)

Farnir:
Davíð Helgi Aronsson í Víking (var á láni)
Viggó Valgeirsson til ÍBV (var á láni)
Almo (var á láni frá Víkingi)
Svavar Örn Þórðarson í HK
Dominik Radic í HK
Aron Snær Friðriksson í Víking

Kominn og farinn:
Alex Freyr Elísson frá Fram og til NSÍ Runavíkur

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner