Guðmundur Magnússon er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að ganga í raðir Njarðvíkur.
Hann hefur verið án félags eftir að hann yfirgaf Fram í upphafi árs.
Guðmundur er 34 ára framherji sem hefur spilað með Fram, Víkingi Ólafsvík, HK, Keflavík, ÍBV, Grindavík og Breiðabliki á sínum ferli.
Hans besta tímabil á ferlinum var tímabilið 2022 með Fram í Bestu deildinni en þá skoraði hann 17 mörk í 26 leikjum.

Njarðvíkingar hafa verið öflugir á markaðnum í vetur og ætla þeir sér að komast upp úr Lengjudeildinni. Fyrr í dag gerði liðið 1-1 jafntefli gegn Íslandsmeisturum Víkings í Lengjubikarnum.
Komnir
Guy Smit frá Vestra
Bragi Karl Bjarkason frá FH
Eiður Aron Sigurbjörnsson frá Vestra
Aron Einarsson frá Leikni
Felix Mathaus frá Grænhöfðaeyjum
Hrafn Guðmundsson frá Stjörnunni (var á láni hjá KFA)
Arnleifur Hjörleifsson alfarið frá ÍA (var á láni)
Farnir
Davíð Helgi Aronsson í Víking (var á láni)
Viggó Valgeirsson til ÍBV (var á láni)
Almo (var á láni frá Víkingi)
Svavar Örn Þórðarson í HK
Dominik Radic í HK
Aron Snær Friðriksson í Víking
Kominn og farinn
Alex Freyr Elísson frá Fram og til NSÍ Runavíkur
Athugasemdir