Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   lau 07. febrúar 2026 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Orri kom aftur inn og tryggði sigurinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Real Sociedad 3 - 1 Elche
1-0 Luka Sucic ('24 )
2-0 Mikel Oyarzabal ('37 )
2-1 Andre Silva ('42 )
3-1 Orri Steinn Óskarsson ('89 )

Real Sociedad tók á móti Elche í lokaleik kvöldsins í spænska boltanum. Aðeins tveir leikir af fjórum fóru fram í dag vegna mikilla flóða og vinda á suðurhluta Spánar.

Sociedad er staðsett í norðurhluta landsins þar sem ekki eru veðurfarsleg vandamál þessa dagana og því fór leikur liðsins fram í kvöld.

Miðjumaðurinn Luka Sucic skoraði fyrsta mark leiksins eftir góða skyndisókn og tvöfaldaði Mikel Oyarzabal forystuna eftir skelfileg mistök í varnarlínu Elche. Oyarzabal komst inn í hörmulega sendingu til baka á markvörð og skoraði í autt markið.

Gengi Sociedad hefur verið frábært undanfarnar vikur eftir að Pellegrino Matarazzo var ráðinn sem aðalþjálfari rétt fyrir áramót. Liðið er ósigrað í átta leikjum undir hans stjórn og hefur klifrað upp stöðutöfluna eftir hörmulegan fyrri hluta tímabils.

André Silva náði að minnka muninn skömmu fyrir leikhlé með frábærri afgreiðslu eftir langan bolta upp völlinn, svo staðan var 2-1 fyrir Sociedad.

Leikurinn var nokkuð jafn en gæðin í liði Sociedad gerðu gæfumuninn. Staðan var áfram 2-1 þegar Orri Steinn Óskarsson kom inn af bekknum á lokakaflanum og skoraði sjö mínútum síðar.

Orri fékk góða sendingu innfyrir frá Jon Gorrotxategi og var svellkaldur þegar hann kláraði framhjá markverði Elche til að innsigla 3-1 sigur. Þetta er annar leikurinn í röð sem Orri skorar í en hann skoraði sigurmarkið gegn Alaves í bikarnum í miðri viku eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Sociedad er í áttunda sæti eftir sigurinn, aðeins þremur stigum frá evrópusæti. Ótrúlegur viðsnúningur á stuttum tíma þar sem liðið var í fallsæti um jólin en er núna komið með 31 stig eftir 23 umferðir. Þar af hafa 14 stig komið í 6 leikjum undir stjórn Matarazzo.


Athugasemdir
banner
banner