Spánarmeistarar Barcelona hafa tikynnt um ákvörðun sína að draga sig úr evrópsku Ofurdeildinni.
Árið 2021 var greint frá plönum um að stofna evrópska Ofurdeild en tólf félög höfðu samþykkt að fara í deildina.
Atlético, Barcelona og Real Madrid voru fulltrúar Spánar. AC Milan, Inter og Juventus frá Ítalíu og þá voru sex stærstu félögin á Englandi búin að samþykkja að fara í deildina, en það voru Arsenal, Chelsea, Liverpool, Man City, Man Utd og Tottenham.
Áætlanirnir skiluðu ekki tilætluðum árangri og kom verulegt bakslag í þessa hugmynd. Öll ensku félögin hættu við og fylgdu síðan önnur félög á eftir.
Barcelona og Real Madrid voru einu félögin sem voru eftir í þessum tólf félaga klúbbi, en nú er Madrídingar einir eftir.
Börsungar tilkynntu í dag að félagið væri búið að ákveða að segja sig úr þessu verkefni og vill það heldur styrkja samband sitt við UEFA, fótboltasamband Evrópu.
Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefur ekki enn gefist upp á Ofurdeildinni og heldur áfram að styðja við verkefnið. Hann segir félagið ætli einnig að höfða mál gegn UEFA fyrir að stöðva plön Ofurdeildarinnar.
FC BARCELONA STATEMENT https://t.co/HsHNaqHtIi pic.twitter.com/1Knaja2sJd
— FC Barcelona (@FCBarcelona) February 7, 2026
Athugasemdir


