Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   sun 08. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag: Sarri heimsækir gamla félagið
Mynd: EPA
Það eru spennandi leikir framundan í ítalska boltanum í dag þar sem Bologna, sem hefur gengið hörmulega síðustu vikur, tekur á móti Parma í hádegisleiknum.

Lecce spilar svo við Udinese en Þórir Jóhann Helgason hefur ekki verið í hóp hjá fallbaráttuliði Lecce síðustu tvo leiki.

Lecce er í harðri fallbaráttu, með 18 stig eftir 23 umferðir. Udinese er með 32 stig.

Topplið Inter heimsækir svo nýliða Sassuolo og getur aukið forystuna á AC Milan í átta stig, en Milan spilar ekki þessa umferðina útaf því að heimavöllur liðsins er ónothæfur. San Siro var notaður fyrir opnunarathöfn Vetrarólympíuleikanna. Milan átti að mæta Como en leikurinn hefur verið færður á miðvikudagskvöldið 18. febrúar.

Stórleikur sunnudagsins er kvöldleikurinn, þar sem Juventus tekur á móti Lazio. Maurizio Sarri mætir þar á sinn gamla heimavöll eftir að hafa þjálfað Juve tímabilið 2019-20 þegar COVID faraldurinn skall á.

Leikir dagsins
11:30 Bologna - Parma
14:00 Lecce - Udinese
17:00 Sassuolo - Inter
19:45 Juventus - Lazio
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 27 22 1 4 64 21 +43 67
2 Milan 27 16 9 2 43 20 +23 57
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Roma 27 16 3 8 37 19 +18 51
5 Como 27 13 9 5 44 20 +24 48
6 Juventus 27 13 8 6 46 28 +18 47
7 Atalanta 27 12 9 6 37 24 +13 45
8 Bologna 27 11 6 10 36 32 +4 39
9 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
10 Udinese 27 10 5 12 31 39 -8 35
11 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
12 Parma 27 8 9 10 20 32 -12 33
13 Cagliari 27 7 9 11 29 36 -7 30
14 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
15 Genoa 27 6 9 12 32 39 -7 27
16 Fiorentina 27 5 9 13 30 42 -12 24
17 Cremonese 27 5 9 13 21 38 -17 24
18 Lecce 27 6 6 15 18 36 -18 24
19 Pisa 27 1 12 14 20 44 -24 15
20 Verona 27 2 9 16 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner
banner