Bruno Fernandes skoraði í 2-0 sigri Manchester United gegn Tottenham í gær og varð þar með næstfljótastur í úrvalsdeildarsögu félagsins (frá 1992) að koma með beinum hætti að 200 mörkum í öllum keppnum.
Wayne Rooney er enn með metið þar sem það tók hann 295 leiki að koma að 200 mörkum fyrir Man Utd og situr Cristiano Ronaldo í þriðja sæti þar sem það tók hann 339 leiki að afreka slíkt hið sama. David Beckham og Ryan Giggs koma þar á eftir.
Bruno Fernandes hefur spilað 314 leiki frá komu sinni til Manchester. Hann er fyrirliði félagsins og hefur verið meðal allra bestu leikmanna enska boltans frá komu sinni í úrvalsdeildina fyrir sex árum síðan.
Þrátt fyrir frábært framlag frá Bruno hefur Rauðu djöflunum ekki tekist að afreka mikið með Portúgalann innanborðs.
Eini leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar sem hefur komið að fleiri mörkum á þeim sex árum sem Bruno hefur verið á Englandi er Mohamed Salah hjá Liverpool.
Rauðu djöflarnir eru í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem stendur, með 44 stig eftir 25 umferðir.
Athugasemdir



