Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
banner
   lau 07. febrúar 2026 16:10
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Skoraði þrennu á átján mínútum er HK burstaði Selfoss
Kvenaboltinn
Mynd: HK
HK 7 - 1 Selfoss
1-0 Ísabel Rós Ragnarsdóttir ('15 )
1-1 Embla Dís Gunnarsdóttir ('27 )
2-1 Melkorka Mirra Aradóttir ('30 )
3-1 Emilía Lind Atladóttir ('59 )
4-1 Karlotta Björk Andradóttir ('62 )
5-1 Karlotta Björk Andradóttir ('67 )
6-1 Karlotta Björk Andradóttir ('80 )
7-1 Ísabel Rós Ragnarsdóttir ('82 )

HK fagnaði 7-1 stórsigri á Selfossi í B-deild Lengjubikars kvenna í Kórnum í dag.

Ísabel Rós Ragnarsdóttir kom HK á bragðið eftir fimmtán mínútna leik en Embla Dís Gunnarsdóttir svaraði fyrir gestina tólf mínútum síðar.

HK tók völdin eftir það. Melkorka Mirra Aradóttir kom HK í forystu á 30. mínútu og í síðari hálfleiknu gekk Kópavogsliðið frá Selfyssingum með fimm mörkum.

Emilía Lind Atladóttir skoraði á 59. mínútu áður en Karlotta Björk Andradóttir skoraði þrennu á átján mínútum. Mögnuð frammistaða hjá Karlottu sem gerði 4 mörk fyrir HK í Lengjudeildinni á síðasta ári.

Ísabel Sól setti síðan kirsuberið á kökuna með sjöunda markinu átta mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma. Frábær 7-1 sigur HK í fyrsta leiknum í B-deildinni staðreynd.
Athugasemdir
banner
banner