Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. febrúar 2026 19:50
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Leverkusen gerði jafntefli í Mönchengladbach
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mönchengladbach 1 - 1 Bayer Leverkusen
1-0 Yannik Engelhardt ('10 )
1-1 Philipp Sander ('44 , sjálfsmark)

Borussia Mönchengladbach tók á móti Bayer Leverkusen í lokaleik dagsins í efstu deild þýska boltans og náðu heimamenn forystunni snemma leiks þegar Yannik Engelhardt skoraði eftir góða hápressu.

Leikurinn var tíðindalítill og einkenndist af mikilli baráttu, en Leverkusen náði þó að jafna fyrir leikhlé. Philipp Sander varð þá fyrir því óláni að gera sjálfsmark eftir að hafa rekið fótlegg fyrir boltann í marktilraun frá Aleix García.

Gestirnir frá Leverkusen fengu besta færið í síðari hálfleik en þeim tókst ekki að skora svo lokatölurnar urðu 1-1.

Leverkusen er í fimmta sæti með 36 stig eftir 20 umferðir, í harðri baráttu um meistaradeildarsæti.

Mönchengladbach er í neðri hlutanum, aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Leverkusen á eftir að spila við St. Pauli, Olympiakos, Union Berlin og Mainz í febrúar.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 25 21 3 1 92 24 +68 66
2 Dortmund 25 16 7 2 53 26 +27 55
3 Hoffenheim 25 15 4 6 53 33 +20 49
4 Stuttgart 25 14 5 6 50 34 +16 47
5 RB Leipzig 25 14 5 6 48 34 +14 47
6 Leverkusen 25 13 5 7 48 32 +16 44
7 Frankfurt 24 9 7 8 48 49 -1 34
8 Freiburg 25 9 7 9 37 42 -5 34
9 Augsburg 25 9 4 12 31 43 -12 31
10 Hamburger 25 7 8 10 28 36 -8 29
11 Union Berlin 24 7 7 10 29 38 -9 28
12 Gladbach 25 6 7 12 28 43 -15 25
13 Köln 25 6 6 13 34 43 -9 24
14 Mainz 25 5 9 11 29 41 -12 24
15 St. Pauli 24 6 5 13 23 40 -17 23
16 Werder 24 5 7 12 25 44 -19 22
17 Wolfsburg 25 5 5 15 34 55 -21 20
18 Heidenheim 25 3 5 17 24 57 -33 14
Athugasemdir
banner
banner