Bryan Mbeumo og Kobbie Mainoo voru bestu leikmenn Manchester United í 2-0 sigrinum á Tottenham á Old Trafford í dag, en það er Manchester Evening News sem heldur utan um einkunnir heimamanna.
Mbeumo skoraði fyrra mark United eftir sendingu frá Mainoo, sem kom allt eftir vel útfærða hornspyrnu beint af æfingasvæðinu.
Þeir tveir voru mjög öflugir hjá United í leiknum. Mainoo geislar af sjálfstrausti eftir að hafa verið í kuldanum undir stjórn Ruben Amorim fyrri hluta tímabilsins.
MEN gefur Mbeumo og Mainoo 8 í einkunn. Diogo Dalot var einnig mjög góður, en hann fær 7 eins og þeir Luke Shaw, Casemiro, Bruno Fernandes og Matheus Cunha.
Man Utd: Lammens (6), Dalot (7), Maguire (6), Martínez (6), Shaw (7), Casemiro (7), Mainoo (8), Fernandes (7), Cunha (7), Mbeumo (8), Amad (6).
Varamenn: Sesko (6), Mazraoui (6), Ugarte (6), Zirkzee (6).
Football.London heldur utan um einkunnir Tottenham-manna, en þar var Argentínumaðurinn Cristian Romero lang slakastur með aðeins 3 í einkunn, enda spilaði hann aðeins tæpan hálftíma og sá rautt.
Guglielmo Vicario, markvörður Tottenham, var þeirra langbesti maður með 8 í einkunn.
Tottenham: Vicario (8), Gray (7), Romero (3), Van de Ven (6), Udogie (6), Palhinha (6), Sarr (7), Odobert (5), Gallagher (6), Simons (6), Solanke (5).
Varamenn: Dragusin (6), Souza (6).
Athugasemdir



