Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   sun 08. febrúar 2026 10:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Real Madrid á eftir Rodri - Enrique orðaður við Man Utd
Powerade
Rodri
Rodri
Mynd: EPA
Luis Enrique
Luis Enrique
Mynd: EPA
Leon Goretzka
Leon Goretzka
Mynd: EPA
Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu í slúðurpakka dagsins.

Real Madrid er að auka áhuga sinn á Rodri, 29 ára miðjumanni Manchester City, en spænski landsliðsmaðurinn á innan við 18 mánuði eftir af samningi sínum. (Teamtalk)

Arsenal vill fá miðjumanninn Leon Goretzka frá Bayern á frjálsri sölu í sumar en enska félagið reyndi að fá hann í janúar. (Mirror)

Juventus hefur ekki verið í viðræðum við framherjann Dusan Vlahovic síðan síðasta sumar en samningur hans við félagið rennur út næsta sumar. Chelsea, Tottenham, Milan, Inter og Roma hafa áhuga á þessum 26 ára gamla Serba. (Foot Mercato)

Luis Enrique, stjóri PSG, hefur verið orðaður við Man Utd en spænski stjórinn telur að það sé ekki rétt verkefni fyrir sig og mun skrifa undir nýjan samning við franska félagið. (Mirror)

Man Utd og Newcastle eru meðal fjölda félaga sem hafa áhuga á Michael Kayode, 21, hægri bakverði Brentford. (Teamtalk)

Inter mun bjóða stjóranum Cristian Chivu nýjan samning og launahækkun eftir tímabilið sem gildir út árið 2028. (Corriere dello Sport)

Argentíski framherjinn Paulo Dybala, 32, og ítalski miðjumaðurinn Lorenzo Pellegrini, 29, munu þurfa taka á sig launalækkun ef þeir vilja vera áfram hjá Roma en samningar þeirra við félagið renna út í sumar. (Gazzetta dello Sport)

Ítalski miðjumaðurinn Sandro Tonali, 26, gæti beðið um sölu frá Newcastle ef liðinu mistekst að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili. (Football Insider)

En Newcastle horfir til enska miðjumannsins Tyler Morton, 23, sem mögulegan arftaka Tonali. Crystal Palace og Nottingham Forest hafa einnig áhuga á þessum fyrrum leikmanni Liverpool. (Caughtoffside)

Barcelona hefur ákveðið að gera lánssamning Marcus Rashford, 28 ára gamlan, frá Manchester United varanlegan. (Fichajes)
Athugasemdir
banner