Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   sun 08. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Meistaradeildarslagur í Madríd
Mynd: EPA
Það eru fjórir leikir á dagskrá í efstu deild spænska boltans í dag og hefst fjörið skömmu eftir hádegi þegar Alavés og Getafe eigast við í þéttum fallbaráttupakka.

Athletic Bilbao er óvænt í fallbaráttunni og þarf sigur á heimavelli gegn Levante, sem situr í fallsæti.

Atlético Madrid spilar svo við Real Betis í áhugaverðum slag þar sem dýrmæt stig eru í húfi fyrir bæði lið í baráttunni um meistaradeildarsæti.

Real Madrid heimsækir að lokum Valencia og getur brúað bilið að toppliði Barcelona aftur niður í eitt stig með sigri. Valencia er einu stigi fyrir ofan fallsæti.

Leikir dagsins
13:00 Alaves - Getafe
15:15 Athletic Bilbao - Levante
17:30 Atletico Madrid - Real Betis
20:00 Valencia - Real Madrid
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 26 21 1 4 71 26 +45 64
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Atletico Madrid 26 15 6 5 43 23 +20 51
4 Villarreal 26 16 3 7 48 31 +17 51
5 Betis 26 11 10 5 42 32 +10 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 26 9 8 9 38 38 0 35
9 Athletic 26 10 5 11 30 36 -6 35
10 Osasuna 26 9 6 11 30 30 0 33
11 Getafe 26 9 5 12 21 29 -8 32
12 Vallecano 26 7 9 10 26 32 -6 30
13 Sevilla 26 8 6 12 34 41 -7 30
14 Girona 26 7 9 10 27 42 -15 30
15 Valencia 26 7 8 11 27 39 -12 29
16 Alaves 26 7 6 13 23 34 -11 27
17 Elche 26 5 11 10 34 39 -5 26
18 Mallorca 26 6 6 14 29 42 -13 24
19 Levante 26 5 6 15 28 44 -16 21
20 Oviedo 26 3 8 15 16 43 -27 17
Athugasemdir
banner
banner